Stefán Briem
Íslensk heimasíða
Dansk English Esperanto
Menntun:
- 1968 Cand. mag. í kennilegri
kjarneðlisfræði frá
Árósaháskóla, Danmörku.
- 1978–1979 Eins vetrar nám í
tölvunarfræði (að hluta á framhaldsstigi)
í Albertaháskóla, Kanada.
Störf:
- 1968–1978 og 1979–1986 Kennsla í
eðlisfræði, stjörnufræði og
tölvufræði í Menntaskólanum við
Hamrahlíð, auk umtalsverðrar
hugbúnaðargerðar fyrir skólann.
- 1987–2013 Ýmis störf í tungutækni
eða tengd henni. Helstu verkefni:
- Eigin rannsóknir og þróun, einkum á
sviði vélrænna
tungumálaþýðinga allt þetta
tímabil, að mestu leyti unnið í
frístundum.
Styrkt af Vísindaráði 1987. Þessi vinna
hófst
reyndar árið 1981 með samningu hugbúnaðar sem
þýðir sjálfvirkt af esperanto á
íslensku.
- Kennsla í Háskóla Íslands á
haustmisseri 1987, námskeið um vélrænar
tungumálaþýðingar.
- Verkefni unnin í samvinnu við hollenska
fyrirtækið BSO vegna þátttöku
íslensku í DLT-verkefninu fyrir vélrænar
tungumálaþýðingar með esperanto sem
millimál, 1987–1993. Styrkt af
Menntamálaráðuneytinu 1988 og af
Vísindaráði 1989 og 1990.
- Meðhöfundur Íslenskrar
orðtíðnibókar á Orðabók
Háskólans, 1989–1991, samdi m.a. forrit fyrir
sjálfvirka beygingarfræðilega greiningu á
íslenskum texta vegna þessa verkefnis.
- Umsjón í
þýðingamiðstöð
utanríkisráðuneytisins með
vélbúnaði og hugbúnaði til
þýðinga á lagagerðum
Evrópubandalagsins, 1990–1993.
- Sérfræðingur um heiti á sviði
eðlisfræði og tölvufræði í Dansk-íslenskri
orðabók, sem Ísafoldarprentsmiðja gaf
út 1992.
- Hönnun og gerð hugbúnaðar fyrir
íslenska notendur Bliss-táknmálsins, unnið sem
málfræðileg viðbót við
IsBliss-hugbúnaðinn fyrir Jón Hjaltalín
Magnússon, 1993–1995.
- Ritstjóri 3. útgáfu Tölvuorðasafns
sem orðanefnd Skýrslutæknifélags Íslands
stendur að,
1995–1998.
- Sjálfstætt starfandi á sviði
tungutækni, einkum við hugbúnaðarhönnun fyrir
vélrænar tungumálaþýðingar og
við þýðingar, 1998–20013
- Ritstjóri 4. útgáfu Tölvuorðasafns,
í tveimur meginhlutum, íslensk-enskum og
ensk-íslenskum hluta; orðanefnd
Skýrslutæknifélags Íslands
stendur að útgáfunni, 2003–2005.
- Störf við 5. útgáfu
Tölvuorðasafns
sem er netútgáfa,
2012–2013.
- Rekstur vefþjónsins Tungutorg
fyrir gjaldfrjálsar vélrænar
þýðingar, frá 29. mars 2008.
Síðast breytt 18. október 2013